Unnar Örn J. Auðarson – Efnahagsleg áhrif / Economic Impact 2010- 2016
Unnar Örn J. Auðarson er fjórði myndlistarmaðurinn sem sýnir á Happy hour opnun artzine. Í þetta sinn er hún haldin á Kaffi Vinyl Hverfisgötu 76.
Efnahagsleg áhrif er mikið notað hugtak og stór hluti af orðræðu bæði stjórnmálamanna sem og stórfyrirtækja í samtímanum en Efnahagsleg Áhrif var einnig nafn á tímariti sem gefið var út af Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna – The United States Information Agency á árunum 1972- 1990 til að kynna utanríks og efnahagsstefnu Bandaríkjanna.